Golf

Kylfusveinn Tigers gagnrýnir púttin hans

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger og nýi pútterinn.
Tiger og nýi pútterinn.

Steve Williams, kylfusveinn Tiger Woods, er nú ekki vanur að tjá sig mikið en hann hefur nú ákveðið að gagnrýna púttin hans Tigers rétt áður en Opna breska meistaramótið hefst.

"Við vitum í hverju hann þarf að vinna. Í ár hefur Tiger þurft að laga púttinn sem eru undir meðallagi," sagði Williams.

Tiger er meðvitaður um það líka og hann mun spila með nýjan pútter á Opna breska.

Hann mun pútta með þyngri pútter á St. Andrews þar sem flatirnar þar eru frekar hægar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×