Fótbolti

Gylfi orðinn leikmaður Hoffenheim

Elvar Geir Magnússon skrifar
Samningur Gylfa er til fjögurra ára. Mynd/Heimasíða Hoffenheim
Samningur Gylfa er til fjögurra ára. Mynd/Heimasíða Hoffenheim

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er orðinn leikmaður þýska úrvalsdeildarliðsins Hoffenheim.

Gylfi gekkst undir læknisskoðun í gær og skrifaði svo undir fjögurra ára samning við þýska liðið.

Hann hefur verið í herbúðum Reading undanfarin ár þar sem hann hefur vakið mikla athygli. Hoffenheim hefur unnið báða leiki sína til þessa í þýsku úrvalsdeildinni.

Gylfi mun nú halda til móts við íslenska landsliðshópinn enda leikir framundan gegn Noregi og Danmörku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×