Innlent

Í gæsluvarðhaldi til 20. desember

Lögreglustöðin á Selfossi
Lögreglustöðin á Selfossi
Þrír karlmenn um tvítugt, sem grunaðir eru um að hafa framið vopnað rán á Selfossi síðastliðinn laugardag, voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 20. desember í Hérðasdómi Suðurlands í dag.

Samkvæmt Ólafi Helga Kjartanssyni, sýslumanni á Selfossi, er rannsókn málsins í fullum gangi. Mennirnir réðust inn í íbúð í bænum og hótuðu þar íbúum. Þeir höfðu einnig á brott með sér tölvur og önnur verðmæti en þeir voru handteknir stuttu eftir ránið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×