Viðskipti erlent

Kate Moss fatalínan lögð niður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kate Moss er hætt samstarfi við Arcadia.
Kate Moss er hætt samstarfi við Arcadia.
Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur slitið samstarfi við bresku Top Shop verslanirnar. Reglulegu samstarf þeirra, sem staðið hefur yfir í fjögur ár, lýkur með haust/vetrarlínunni, samkvæmt frétt Daily Telegraph.

Talið er að ein helsta ástæðan fyrir því að samstarfinu hafi verið slitið sé sú að það taki drjúgan tíma að setja saman fatalínu og Moss hafi viljað snúa sér að öðru. Moss þarf ekkert að kvarta enda er talið að hún hafi þénað 3 milljónir sterlingspunda á fjögurra ára samstarfinu við Arcadia, sem er eigandi Top Shop vörumerkisins. Upphæðin nemur um 560 miljónum íslenskra króna. Ekki er loku fyrir það skotið að einstaka flík í Top Shop bera merki Moss þótt framleiðslu á fatalínum í hennar nafni hafi verið hætt.

Daily Telegraph segir að þegar Sir Philip Green, eigandi Arcadia, hafi samið við Kate Moss fyrir fjórum árum hafi ferill hennar verið við það að fjara út. Þá höfðu nýlega birst myndir af henni þar sem hún var að sjúga kókaín.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×