Eftirlitsnefnd vissi ekki um vanskil hjá Reykjanesbæ 30. ágúst 2010 12:01 Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hyggst senda bréf til þeirra sveitarfélaga sem skulda meira en 150% af heildartekjum á næstu dögum. Reykjanesbær hefur ekki greitt lán upp á 1,8 milljarða sem féll í gjalddaga í byrjun ágúst. Eftirlitsnefndin vissi ekki um það. Reykjanesbæ hefur ekki tekist að endurfjármagna erlent lán sem stendur í 1,8 milljörðum króna en lánið gjaldféll í byrjun ágúst. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Lánið var tekið árið 2000 hjá þýskum banka sem nú er í slitameðferð. Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir að erfitt hafi reynst að semja við bankann um endurfjármögnun vegna þess að bankinn sé í slitameðferð. Allt stefnir í fimm hundruð milljóna króna halla á rekstri bæjarsjóðs Reykjanesbæjar á þessu ári. Í fjárhagsáætlun bæjarins var gert ráð fyrir að tekjur myndu aukast um hátt í sjö hundruð milljónir á þessu ári vegna ýmissa verkefna, aðallega þó vegna framkvæmda við álver í Helguvík. Sú áætlun hefur brugðist en framkvæmdir við álverið og fleiri önnur verkefni hafa tafist. Eftir því sem fréttastofa kemst næst var eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaganna ekki kunnugt um að sveitarfélagið væri í vanskilum með erlenda lánið. Erfið fjárhagsstaða bæjarins kemur nefndinni þó ekki á óvart því málefni Reykjanesbæjar hafa verið til sérstakrar skoðunar hjá nefndinni sem hefur sent bænum formlega viðvörun vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Ólafur Nilsson, formaður nefndarinnar, segir að verið sé að vinna í því að senda bréf til þeirra sveitarfélaga sem skulda meira en 150% af heildartekjum, og Reykjanesbær sé í þeim hópi.
Mest lesið Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Arctic Fish Viðskipti innlent Gervigreindin: Stjórnendur framtíðarinnar verði þjálfarar Atvinnulíf Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Viðskipti innlent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Viðskipti innlent Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Viðskipti innlent Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Viðskipti innlent Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Sjá meira