Innlent

Segist vera nauðbeygður til að banna fosfat í saltfiski

Jón Bjarnason segist hafa verið að láta undan hótunum ESA. Mynd/ GVA.
Jón Bjarnason segist hafa verið að láta undan hótunum ESA. Mynd/ GVA.
Sjávarútvegsráðherra kveðst hafa neyðst til að láta undan hótunum Eftirlitsstofnunar EFTA þegar hann ákvað að banna notkun fosfats í saltfiski. Óskað hefur verið eftir því að sjávarútvegsnefnd Alþingis verði kölluð saman í vikunni vegna málsins.

Notkun fosfats í saltfiski er ekki talin skaða neytendur en efnið heldur fisknum hvítum og frestar því að hann gulni. Krafa um bann virðist því fremur snúast um að jafna samkeppnisstöðu framleiðenda. Íslenskir saltfiskverkendur segja milljarða tjón blasa við vegna ákvörðunar ráðherra að banna efnið frá áramótum.

"Þetta var óumflýjanlegt og okkur var stillt þannig upp," segir ráðherrann, Jón Bjarnason. Eftirlitsstofnun EFTA hafi sett fram kröfuna á þeim grunni að sömu reglur yrðu að gilda fyrir alla á evrópska efnahagssvæðinu.

"Ég hef verið fullvissaður um að þetta væri krafa sem gilti fyrir öll lönd og alla saltfiskframleiðendur og því yrði beitt af mikilli hörku," segir hann.

Saltfiskverkendur hafa bent á að Evrópusambandið sé að skoða umsókn um að leyfa efnið og Danir og Færeyingar ætli að bíða með bann fram á vor.

Jón hefur verið þekktur fyrir að standa uppi í hárinu á Evrópusambandinu. Hefði slíkt ekki verið hægt í þessu máli?

"Ég hefði í sjálfu sér verið reiðubúinn til þess," svarar hann og bætir við að sér finnist svona framganga með hótunum vera mjög óviðeigandi. Íslendingar séu hins vegar aðilar að samningnum um evrópska efnahagssvæðið. Ef allir séu settir undir sömu kröfu verði Íslendingar að beygja sig undir það. "Þó að mér sé það ekkert sérstaklega ljúft," segir ráðherrann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×