Sport

Auðvelt hjá Rögnu gegn Tinnu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ragna var í stuði í dag.
Ragna var í stuði í dag. Mynd/Vilhelm

Ragna Ingólfsdóttir tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í einliðaleik kvenna í dag með auðveldum 2-0 sigri á Tinnu Helgadóttur.

Fyrri lotan var nokkuð spennandi en hana tók Ragna að lotum, 21-16.

Allur vindur virtist vera úr Tinnu í annarri lotu enda rúllaði Ragna þá yfir hana og vann auðveldan sigur, 21-3.

Ragna því Íslandsmeistari enn eitt árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×