Fótbolti

Bodö/Glimt með sögu­legt tak­mark í aug­sýn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ulrik Saltnes (til vinstri) fagnar hér öðru marka sinna í kvöld með liðsfélaga sínum hjá Bodö/Glimt Jens Petter Hauge.
Ulrik Saltnes (til vinstri) fagnar hér öðru marka sinna í kvöld með liðsfélaga sínum hjá Bodö/Glimt Jens Petter Hauge. Getty/David Lidstrom

Norska félagið Bodö/Glimt á fína möguleika á sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar eftir 2-0 heimasigur á Lazio í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum.

Það var kalt í norður Noregi í kvöld og Ítalirnir fundu sig ekki í kvöld.

Ulrik Saltnes var hetja heimamanna en hann skoraði bæði mörkin í leiknum.

Fyrra markið skoraði hann með í upphafi seinni hálfleiks eftir stungusendingu frá Ole Blomberg.

Saltnes bætti síðan við öðru marki á 69. mínútu eftir stoðsendingu frá Jens Petter Hauge. Slapp aftur í gegn og lyfti boltanum yfir markvörðinn. Varnarmaður Lazio reyndi að bjarga en var aðeins of seinn.

Bodö/Glimt átti átján skot á móti sex í þessum leik og var með 2,88 í xG, áætluðum mörkum, á móti aðeins 0,34 hjá ítalska liðinu. Sigurinn var því vissulega góður en heimamenn hefðu auðveldlega geta unnið enn stærri sigur.

2-0 sigur þýðir að Bodö/Glimt er samt í ágætum málum fyrir seinni leikinn í Róm.

Þeir geta þar orðið fyrsta norska fótboltafélagið til að komast í undanúrslit í Evrópukeppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×