Rappstríð í Reykjavík: Útvarpsmaður kom til bjargar 15. febrúar 2010 17:35 Frá vettvangi í Skaftahlíð í dag. „
Þetta er einn æsilegasti þátturinn sem ég hef verið í," segir Frosti Logason, annar umsjónarmanna þáttarins Harmageddon á útvarpsstöðinni X-inu en hann lenti í átökum við rapparann Magnús Ómarsson, eða Móra eins og hann er kallaður, þegar hann lagði til Erps Eyvindarsonar með hnífi. Erpur og Móri hafa deilt í fjölmiðlum undanfarið og voru fengnir í útvarpsþáttinn Harmageddon til þess að útkljá málin. Tónlistarmennirnir komust ekki lengra en inn í anddyri húsnæðis útvarpsstöðvarinnar í Skaftahlíð. Móri reyndist vera vopnaður rafbyssu og hnífi auk þess sem hann var með hund með sér af dobermankyni. Móri lagði til Erps með hnífnum en Frosti brást skjótt við og reyndi að stöðva rapparann. Engu að síður meiddist Erpur lítillega í árásinni en því má sennilega þakka íhlutun Frosta að ekki fór verr. Erpur náði einnig að verjast með skúringamoppu. „Við skiljum ekki þennan rappheim nógu vel enda sjálfir rokkarar," segir Frosti en auk þess að vera útvarpsmaður þá er hann gítarleikari rokkhljómsveitarinnar Mínus. Honum var nokkuð brugðið þegar blaðamaður hafði samband við hann en þá lá fyrir að gefa lögreglunni skýrslu af málinu. Allt tiltækt lögreglulið í Reykjavík leitar enn að Móra en árásin átti sér stað rétt fyrir klukkan fimm síðdegis.Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Tengdar fréttir Móri reyndi að stinga Erp Magnús Ómarsson, betur þekktur sem Móri, reyndi að stinga rapparann Erp Eyvindarson í húsakynnum útvarpsstöðvarinnar X-ins 977 í Skaftahlíð í dag. Móri og Erpur hafa deilt harkalega að undanförnu. Erpur lýsti til að mynda yfir í útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu á dögunum að hann hefði uppgvötað Móra á sínum tíma. Móri sagðist aftur í móti í viðtali við Fréttablaðið fyrir helgi vera búinn að rappa síðan Erpur var í bleyju. 15. febrúar 2010 16:56 Mest lesið Verkföll hafin í sex skólum Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Erlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Segir menntuð fífl hættuleg fífl Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Fleiri fréttir Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Hellti kveikjarabensíni yfir mann og hótaði að kveikja í Ökklasnúnum Esjufara komið til bjargar Banaslys á Þingvallavegi Samræði við þrettán ára nauðgun eftir allt saman Nýr borgarstjóri kynntur á morgun Kennarar samþykkja innanhússtillögu Segir menntuð fífl hættuleg fífl Kókaínsmygl systkina og maka þeirra út um þúfur Fleinn rekinn í hjarta Evrópu verði Úkraína beygð í duftið Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Refsing Dagbjartar þyngd verulega Sameinar sýslumenn: Róar taugar starfsmanna og segir ekkert að óttast Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Hugmyndir Þorgríms séu litaðar vanþekkingu og fordómum Segir karla í forréttindastöðu hafa stofnað Háskólann Stórskemmdi grasflötina við Höfða Sjá meira
Móri reyndi að stinga Erp Magnús Ómarsson, betur þekktur sem Móri, reyndi að stinga rapparann Erp Eyvindarson í húsakynnum útvarpsstöðvarinnar X-ins 977 í Skaftahlíð í dag. Móri og Erpur hafa deilt harkalega að undanförnu. Erpur lýsti til að mynda yfir í útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu á dögunum að hann hefði uppgvötað Móra á sínum tíma. Móri sagðist aftur í móti í viðtali við Fréttablaðið fyrir helgi vera búinn að rappa síðan Erpur var í bleyju. 15. febrúar 2010 16:56