Innlent

Kveikt í sex blaðagámum í nótt

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var sex sinnum kallað út í nótt vegna elds í blaðagámum. Á þessum árstíma fjölgar brunum af þessu tagi mjög en yfirleitt eru unglingar á ferð. Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu var engin hætta af brununum í nótt en oft er þó erfitt að eiga við eld af þessu tagi enda eldsmaturinn mikill og erfitt að slökkva.

Lítið hefur verið um óhöpp eða slys af völdum flugelda það sem af er en slökkviliðið verður með fjölmennari vakt en venjulega í nótt þegar aðal sprengjutíminn gengur í garð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×