Viðskipti innlent

Vill fá fyrrverandi hluthafa með í hópmálssókn gegn Björgólfi Thor

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Fyrrverandi hluthafi í Landsbankanum hyggst höfða mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni en hann telur að Björgólfur Thor hafi blekkt yfirvöld og fjárfesta með rangri upplýsingagjöf um eignarhald sitt á bankanum. Hann hvetur aðra fjárfesta til að hafa samband við sig til að fara í hópmálssókn.

Ólafur Kristinsson, héraðsdómslögmaður, átti hlutabréf í Landsbankanum, en hann telur að Björgólfur Thor Björgólfsson hafi veitt villandi upplýsingar um eignarhald sitt á Landsbankanum fyrir bankahrunið og hann hafi þannig ranglega ekki verið flokkaður sem venslaður aðili með bankanum. Björgólfur Thor hafi verið með undir 20 prósenta eignarhlut í Landsbankanum því nánir samstarfsmenn hans hafi haldið utan um 5 prósenta hlut í Givenshire Equities, móðurfélagi Samsonar, en Samson hélt utan um eignarhlut Björgólfsfeðga í bankanum.

Hlutur samstarfsmannanna hafi hins vegar verið undir hans stjórn og því hafi átt að flokka Björgólf Thor sem venslaðan aðila með Landsbankanum. Það hafi hins vegar ekki verið gert og aðgengi Björgólfs að lánsfé hjá Landsbankanum hafi því orðið mun greiðara fyrir vikið.

Telur þú að Björgólfur Thor og Landsbankinn hafi viljandi blekkt yfirvöld og hluthafa í bankanum?

„Gögnin sem ég hef undir höndum veita vísbendingar um að hann (Björgólfur Thor innsk.blm) hafi allavega reynt að hylja slóðina," segir Ólafur Kristinsson.

Hann segir að röng flokkun á Björgólfi Thor hafi haft margvíslegar afleiðingar, t.d hafi ekki þurft að gefa upp lánveitingar til hans opinberlega. Markaðurinn hafi því ekki fengið rétta mynd af þeirri áhættu sem fylgdi því að fjárfesta í Landsbankanum.

„Þegar keypt eru skuldabréf, eða hlutabréf, þegar venslaður aðili á svona stóra stöðu af lánasafni bankans þá rýrir það verðgildi bankans mjög mikið. Það má líka ímynda sér að hann hafi verið að nota bankann í eigin þarfir án þess að hægt sé að slá því föstu," segir Ólafur.

Þannig hafi ekki aðeins hluthafar verið blekktir, heldur einnig fjárfestar sem keyptu skuldabréf í Landsbankanum. Ólafur segist vera að safna saman hluthöfum í Landsbankanum og hyggst fara í hópmálssókn gegn Björgólfi Thor. Hann hvetur aðra fyrrverandi hluthafa í Landsbankanum að hafa samband við sig.

Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona Novators og Björgólfs Thors, hafnar ásökunum Ólafs. „Þessi ályktun hans er einfaldlega byggð á röngum forsendum. Það lágu alltaf fyrir á hverjum tíma réttar upplýsingar um eignarhaldið, það var tilkynnt til Fjármálaeftirlitsins og regluvarðar í Landsbankanum, þannig að forsendurnar eru einfaldlega rangar."

Ragnhildur segir að alltaf hafi verið gefnar upp réttar upplýsingar um eignarhald Björgólfs Thors í Landsbankanum.

En hvað segir Björgólfur Thor um það að fyrrverandi hluthafar Landsbankans ætli hugsanlega í hópmálssókn gegn honum?

„Hann gerir engar athugasemdir við það. Ef fólk telur á sér brotið þá á það að sjálfsögðu að leita til dómstóla, það er réttur farvegur fyrir slík mál," segir Ragnhildur Sverrisdóttir.


Tengdar fréttir

Björgólfur Thor gerir athugasemd við fréttaflutning

Björgólfur Thor Björgólfsson, fjárfestir, gerir athugasemdir við frétt Vísis frá því í gær um eignarhald hans á Landsbankanum og félagið Givenshire Equities sem skráð er á Kýpur. Fréttastofan stendur við fréttina. Hins vegar skal tekið fram að í útgáfu á fréttinni sem birtist á Vísi urðu þau mistök að orðið „tengdra aðila“ vantaði þegar vísað var til lánveitinga til Björgólfs Thors upp úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×