Lífið

Bakarar berjast til góðs

láta gott af sér leiða Hilmir Hjálmarsson, til vinstri, og Stefán Gaukur Rafnsson mætast í Góðgerðabardaganum mikla á laugardaginn næsta. Þeir berjast til styrktar einhverfum og hjartveikum börnum.Myndir/Arnold Björnsson
láta gott af sér leiða Hilmir Hjálmarsson, til vinstri, og Stefán Gaukur Rafnsson mætast í Góðgerðabardaganum mikla á laugardaginn næsta. Þeir berjast til styrktar einhverfum og hjartveikum börnum.Myndir/Arnold Björnsson

Hilmir Hjálmarsson, bakari hjá Sveinsbakaríi, mun slást við Stefán Gauk Rafnsson, vin sinn og samstarfsmann, í bardaga til styrktar einhverfum og hjartveikum börnum. Bardaginn fer fram í Valsheimilinu á laugardaginn næsta.

„Við félagarnir í vinnunni erum stanslaust í samkeppni og okkur langaði að fara að æfa einhverja íþrótt saman. Á sama tíma langaði mig að reyna að gera eitthvað til að styrkja einhverf börn en gera það á óhefðbundinn hátt," útskýrir Hilmir, sem á ungan frænda sem er einhverfur og því er málefnið honum hugleikið.

Hilmir og Stefán ákváðu í kjölfarið að hefja æfingar hjá Hnefaleikastöðinni og hafa þeir nú æft stíft í um sjö mánuði. Spurður hvort það sé nægur tími til að koma sér í form fyrir slíkan bardaga svarar Hilmir því játandi.

„Sjö mánuðir eru nóg ef maður er að berjast við annan mann sem hefur æft jafn lengi, en ég tók einn æfingabardaga við Íslandsmeistarann og hann rúllaði mér upp."

Hilmir og Stefán ætla sér báðir að vinna bardagann og verður því hart barist að Hlíðarenda á laugardaginn.

„Ég er mjög sigurviss enda eldri, stærri, sterkari og sneggri. Ég ætla ekki að láta einhvern smástrák sem er sjö árum yngri lemja mig," segir Hilmir og hlær.

Hilmir óttast ekki að bardaginn muni hafa áhrif á vináttuna, þeir séu aðeins andstæðingar innan hringsins. Þegar hann er að lokum inntur eftir því hvort hann kvíði bardaganum svarar Hilmir því neitandi.

„Ég hef ekki haft tíma til að vera kvíðinn eða hugsa mikið um hringinn, það er búið að vera svo mikið að gera. Við erum báðir í góðu formi og þetta verður bara þrusubardagi og ég ætla mér að taka þetta," segir hann að lokum. Miði á Góðgerðabardagann mikla kostar 1.000 krónur og er hægt að nálgast miðana í gegnum midi.is.

sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.