Innlent

Lögreglan lærir um peningaþvætti

Richard Joyce, sérfræðingur frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, flutti erindi á námskeiðinu
Richard Joyce, sérfræðingur frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, flutti erindi á námskeiðinu
Fjármunabrot og peningaþvætti tengt skipulagðri brotastarfsemi voru í brennidepli á tveggja daga námskeiði, sem haldið var í Lögregluskólanum nýverið. Rannsóknir slíkra mála eru oft mjög umfangsmiklar en á námskeiðinu var farið yfir fjölmörg atriði sem að þessu snúa.

Sex erlendir sérfræðingar komu gagngert til landsins til að flytja erindi á námskeiðinu en tveir íslenskir sérfræðingar á þessu sviði komu líka við sögu.

Það voru lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og embætti sérstaks saksóknara sem stóðu fyrir námskeiðinu í samvinnu við Lögregluskólann og nokkrar stofnanir í Bandaríkjunum. Flestir þátttakenda á námskeiðinu voru frá áðurnefndum embættum en einnig sóttu það starfsmenn nokkurra samstarfsaðila þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×