Tónlist

Tvöfalt safn frá Mannakornum

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin Mannakorn hefur sent frá sér safnplötuna Gamli góði vinur.
Hljómsveitin Mannakorn hefur sent frá sér safnplötuna Gamli góði vinur. Vísir/Valli
Hin tvöfalda safnplata Gamli góði vinur með hljómsveitinni Mannakorn er komin út hjá Senu. Hún inniheldur 42 af vinsælustu lögum sveitarinnar frá upphafi og til dagsins í dag. Á meðal þeirra eru Reyndu aftur, Braggablús, Ó þú og Blús í G.

Þessi glæsilegi pakki inniheldur bækling þar sem má finna alla texta við lögin á plötunni sem og nokkrar ljósmyndir frá ferlinum. Fjögur ár eru liðin síðan tónleikaplatan Ekki dauðir enn kom út þar sem Mannakorn spilaði mörg af sínum bestu lögum í Salnum í tilefni af 30 ára afmæli sínu.

Söngvarinn og bassaleikarinn Pálmi Gunnars­son er mjög ánægður með nýju safnplötuna.

„Þeir höfðu veg og vanda af því að velja þessi lög strákarnir hjá Senu en þetta var allt gert með okkar blessun,“ segir Pálmi. Mannakorn hélt um síðustu helgi tvenna tónleika í Háskólabíói og seldust miðarnar upp á örskömmum tíma.

„Það var ægilega vel staðið að þeim tónleikum og þetta var ofboðslega gaman,“ segir hann og býst við því að tónleikarnir verði endurteknir í haust. Mannakorn spilar á nokkrum stöðum í sumar, þar á meðal á Akureyri og í Grindavík. Einnig er fyrirhuguð spilamennska um verslunarmannahelgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×