Golf

Birgir Leifur sjóðheitur og leiðir í Kiðjaberginu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birgir Leifur sýndi í dag að hann er líklegur til afreka um helgina.
Birgir Leifur sýndi í dag að hann er líklegur til afreka um helgina.

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG mun líklega leiða Íslandsmótið í golfi í Kiðjabergi eftir fyrsta daginn en hann var að koma í hús á 68 höggum, eða þrem undir pari, sem er vallarmet.

Birgir Leifur lék glæsilegt golf í dag og fékk þrjá fugla á fyrstu fjórum holunum. Alls fékk hann sex fugla í dag og þrjá skolla.

Sigurpáll Geir Sveinsson lék einnig mjög vel í dag en hann lauk keppni á 69 höggum og er því höggi á eftir Birgi Leifi.

Af þeim kylfingum sem hafa lokið keppni þá koma næstir þeir Sigmundur Einar Másson og Heiðar Davíð Bragason á 71 höggi.

Hlynur Geir Hjartarson, Ólafur Már Sigurðsson, Örn Ævar Hjartarson og Hrafn Guðlaugsson léku allir á 72 höggum.

Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Ólafur Björn Loftsson, fann sig ekki í dag og skilaði skorkorti upp á 76 högg. Hann þarf því heldur betur að taka sig á ef hann ætlar að verja titilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×