Innlent

Beðnar að hrella ekki foreldra með sms

í Hellishólum Hjálparsveitarmenn aðstoðuðu breskar skólastúlkur við að bjarga föggum sínum úr gistiaðstöðu í Hellishólum eftir að búið var að loka Fljótshlíð fyrir allri umferð. Skömmu síðar fengu bændur einnig undanþágu til að sinna skepnum sínum á svæðinu. Fréttablaðið/Vilhelm
í Hellishólum Hjálparsveitarmenn aðstoðuðu breskar skólastúlkur við að bjarga föggum sínum úr gistiaðstöðu í Hellishólum eftir að búið var að loka Fljótshlíð fyrir allri umferð. Skömmu síðar fengu bændur einnig undanþágu til að sinna skepnum sínum á svæðinu. Fréttablaðið/Vilhelm

Flytja þurfti 43 ferðamenn frá gistiþjónustunni að Hellishólum í Fljótshlíð aðfaranótt miðvikudags vegna rýmingar Almannavarna. Laíla Ingvarsdóttir og Víðir Jóhannsson, staðarhaldarar á Hellishólum, segja rýminguna hafa gengið bæði fljótt og vel.

„Við fengum líka viðvörun tiltölulega snemma um að það gæti þurft að rýma svæðið," sagði Laila, en lögregla hafði samband við þau upp úr klukkan tvö um nóttina. Klukkan fjögur var svo tekin ákvörðun um allsherjarrýmingu í Fljótshlíð.

Meðal gesta var hópur um 30 breskra unglingsstúlkna sem hér eru í skólaferðalagi. Árni Magnússon fararstjóri sagði áherslu hafa verið lagða á að skapa ekki ótta að óþörfu í hópnum og það hafi gengið mjög vel. Þá hafi verið brýnt fyrir stúlkunum að hrella ekki aðstandendur að óþörfu með skilaboðasendingum um miðja nótt.

Svæðið var tæmt á nokkrum mínútum með því að Víðir hljóp á milli gistiskýla og bankaði upp á. Stúlkurnar og hluti kennara var enda á náttklæðum þegar komið var í áfallamiðstöðina í Hvolsskóla á Hvolsvelli, undir klukkan fimm um morguninn.

Stúlkurnar létu ævintýrið sýnilega ekki á sig fá og var nokkuð létt yfir hópnum þegar ferðalangar, sem gist höfðu á Hellishólum, fengu að snúa inn á svæðið til að taka saman föggur sínar klukkan að verða hálfsex um morguninn. - óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×