Enski boltinn

Ívar um Gylfa: Einn sá besti í Evrópu á þessum aldri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ívar Ingimarsson.
Ívar Ingimarsson. Nordic Photos / Bongarts

Ívar Ingimarsson segir að Reading sakni eðlilega Gylfa Þórs Sigurðssonar sem var seldur til þýska úrvalsdeildarfélagsins Hoffenheim í sumar.

Gylfi Þór er 21 árs og var á mála hjá Reading frá því að hann var fimmtán ára þar til nú í sumar. Hann er nú einn dýrasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar en hann var seldur á 1300 milljónir til Hoffenheim.

„Eðlilega söknum við Gylfa enda tel ég að öll lið í þessari deild og þeirri fyrir ofan myndu sakna hans úr sínu liði," sagði Ívar en Reading leikur í ensku B-deildinni. „Að mínu viti er hann einn besti leikmaður Evrópu á þessum aldrei. Hann er einfaldlega kominn í þann klassa. Þess vegna var hann seldur á 1300 milljónir. Hann hefur kosti sem ekki margir leikmenn hafa."

Það er aðeins um ár síðan að Gylfi var í byrjunarliði Reading í fyrsta sinn í deildarleik. Óhætt er að segja að hann hafi slegið í gegn en hann skoraði 20 mörk á tímabilinu í öllum keppnum.

„Leikstíll liðsins hefur mikið breyst síðan hann fór enda var liðið að miklu leyti til byggt upp í kringum hann," sagði Ívar enn fremur.

Ívar hefur átt möguleika á að fylgjast vel með Gylfa enda hefur hann verið í Reading öll þau ár sem Gylfi var hjá félaginu.

„Það var alltaf mjög vel talað um hann. En auðvitað er aldrei hægt að vita hvernig menn munu standa sig fyrr en þeir fá tækifærið. En hann sýndi um leið og það kom að hann var tilbúinn og hann spilaði gríðarlega vel," sagði Ívar.

„Gylfi býr yfir mörgum kostum. Hann hugsar gríðarlega vel um sig og æfir einstaklega vel. Hann er duglegur að æfa aukalega og það hefur tvímælalaust skilað sér. Hann tók þetta skrefi lengra en flestir aðrir."

„Og með þeim hæfileikum sem hann býr yfir getur hann bætt sig enn meira. Hann er nú kominn í þetta sterka lið í Þýskalandi og þar að auki í A-landsliðið."

„Ég hef lengi sagt að Gylfi getur farið eins langt og hann vill sjálfur. Hann hefur allt til þess að bera og hann getur náð mun lengra en þetta."




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×