Viðskipti erlent

Þarf að velja á millli fótboltaliðsins og bankans

Stjörnuhagfræðingurinn Jim O´Neill stendur nú frammi fyrir valinu á milli uppáhalds fótboltaliðs síns og bankans sem hann vinnur fyrir. O´Neill er þekktur fyrir nákvæmar spár sínar á sveiflum á gjaldeyrismörkuðum og hann er talinn áhrifamesti hagfræðingur heimsins í einkageiranum.

Fótboltaliðið sem hér um ræðir er Manchester United og bankinn er Goldman Sachs. O´Neill hefur verið einlægur aðdáandi liðsins allt sitt líf og hann er í forystu fyrir hópnum Rauðu riddararnir sem nú reyna að rífa liðið úr höndum Glazer-fjölskyldunnar bandarísku.

Skilaboð Goldman Sachs til þessarar stjörnu sinnar eru skýr: Þú þarft að velja á milli vinnu þinnar og ástarinnar á fótboltaliðinu Manchester United, að því er segir í ítarlegri umfjöllun á börsen.dk um Jim O´Neill.

O´Neill er ekki auðmaður eins og hinir Rauðu riddararnir fjórir en á móti kemur að hann nýtur nær takmarkalausrar virðingar í fjármálaheimi London-borgar. Það umfram annað hefur leitt til þess að Rauðu riddararnir segja að þeir geti nú lagt fram tilboð upp á 1,5 milljarð punda í Manchester United. Tilboð sem Glazer-fjölskyldan á erfitt með að hafna.

Jim O´Neill ólst upp sem sonur fátæks póstmanns í suðurhluta Manchester borgar. Sem unglingur hafnaði hann skólastyrk frá virtum einkaskóla þar sem skólinn tók fótbolta ekki alvarlega. O´Neill tekur fótbolta hinsvegar mjög alvarlega, svo mjög að hann er tilbúinn að fórna starfi sínu fyrir lið sitt.

Það var Goldman Sachs sem aðstoðaði Glazer-fjölskylduna við að afla 500 milljón punda til að kaupa Manchester United á sínum tíma. Sama dag sagði O´Neill án þess að blikna eða blána í samtali við Bloomberg fréttaveituna að kaupin á liðinu væru slæm viðskipti. Liðið væri of skuldsett. Hann myndi ekki kaupa neitt af þeim skuldabréfum sem voru í boði. „Ég set ævilangan stuðning minn við Manchester United framar öllu öðru," sagði hann.

Þetta leiddi til þess að Glazer-fjölskyldan kom kvörtunum á framfæri við Lloyd Bankfein forstjóra Goldman Sachs sem reiddist yfirlýsingum hagfræðings síns og skammaði hann fyrir þær.

Það kemur í ljós á næstu dögum hvort Glazer-fjölskyldan stenst tilboð Rauðu riddarana eða ekki. Kannski nær O´Neill að uppfylla drauma sína og kaupa Manchester United. Fari svo eru vandamál hans hjá Goldmans Sachs úr sögunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×