Innlent

Byr krefst skaðabóta

Byr hf. ætlar að krefja hina ákærðu um skaðabætur vegna þess tjóns sem þeir ollu sparisjóðnum.
Byr hf. ætlar að krefja hina ákærðu um skaðabætur vegna þess tjóns sem þeir ollu sparisjóðnum.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Byr hf. hefur verið lögð fram skaðabótakrafa á hendur þeim sem hafa verið ákærðir vegna lánveitinga í Exeter holding málinu. Málið er það fyrsta sem kemst á ákærustig hjá sérstökum saksóknara.

Í fréttatilkynningunni kemur fram að enginn þeirra þriggja sem ákærðir séu í málinu starfi hjá Byr auk þess sem breytingar hafi verið gerðar á innra skipulagi félagsins til að tryggja að viðlíka mál komi ekki upp aftur.

Stöð 2 greindi frá ákærunum fyrr í kvöld en þeir þrír sem ákærðir eru heita Ragnar Zophonías Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri og Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka.

„Það er mikilvægt að við horfum til baka og gerum hreint fyrir okkar dyrum og áttum okkur á því hvað fór úrskeiðis. Við lítum á það þannig að við höfum verið fórnarlömb í þessu máli þar sem miklir fjármunir töpuðust í tengslum við umræddar lánveitingar. Sú skaðabótakrafa sem nú hefur verið lögð fram er liður í því ferli", segir Jón Finnbogason, forstjóri Byrs í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×