Fótbolti

Van Gaal: Ætti að hætta með Bayern núna

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
GettyImages
Louis van Gaal gæti verið á leiðinni inni sitt síðasta tímabil hjá Bayern Munchen. Van Gaal sagði í dag að hann hefði lítinn áhuga á að framlengja samning sinn sem rennur út eftir tímabilið.

Hollendingurinn hefur unnið deildina, tvo bikarmeistaratitla og komist í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðustu tólf mánuðum. Síðasta tímabil var því gott.

"Ég ætla ekki að skrifa undir nýjan samning núna," sagði van Gaal.

"Ég ætti reyndar að hætta að þjálfa Bayern núna þar sem nú er tíminn sem landsliðsþjálfarar eru ráðnir. Ég vil þjálfa landslið næst."

Hann bætti við að hugsanlega myndi hann taka eitt ár í viðbót og taka svo við landsliði eftir EM 2012 þar sem hann vildi vera á HM 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×