Tíska og hönnun

Selur hönnun sína í Afríku

Vigdís Guðmundsdóttir hefur gert samning við lúxushótelkeðjuna Zuri um að selja hönnun hennar bæði á Indlandi og í Afríku.
Vigdís Guðmundsdóttir hefur gert samning við lúxushótelkeðjuna Zuri um að selja hönnun hennar bæði á Indlandi og í Afríku. fréttablaðið/arnþór

Vigdís Guðmundsdóttir, sem búsett er í borginni Puducherry á Suður-Indlandi, rekur fyrirtækið D&G Agency, en það framleiðir meðal annars hágæða fartölvutöskur fyrir konur auk fylgihluta og fatnaðar.

Vigdís hefur verið með annan fótinn á Indlandi síðustu fjögur árin og kann vel við sig, enda er þar sumar allt árið um kring og fólkið yndislegt.

„Mér líkar mjög vel á Indlandi. Ég er búin að koma mér vel fyrir og er búin að fá mér hund líka," segir Vigdís og hlær.

Vigdís hyggst opna eigin vinnustofu á Indlandi innan skamms þar sem hún mun sjálf hanna og framleiða nýja fatalínu á bæði kynin.

Línan mun meðal annars innihalda leðurjakka og aðrar flíkur unnar úr leðri. „Allt sem ég hanna er úr leðri. Ég er búin að læra svo mikið um leður og leðurvinnslu í kringum töskuframleiðsluna og er nú orðin svolítill sérfræðingur í því og þess vegna langar mig að halda áfram að hanna úr leðri," segir Vigdís.

Nýverið gerði Vigdís samning við hótelkeðjuna Zuri, sem rekur lúxushótel víða á Indlandi, Afríku og á Englandi, og mun hönnun hennar verða seld í hótelverslunum frá og með haustinu. „Þessi samningur kemur sér mjög vel. Það er mikið af viðskiptafólki sem dvelur á þessum hótelum og því verða töskurnar og fylgihlutir í forgrunni til að byrja með, svo sjáum við bara hvað setur. Það er líka skemmtilegt að hugsa til þess að nú sé hægt að kaupa íslenska hönnun bæði á Indlandi og í Afríku," segir Vigdís að lokum. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.