Viðskipti innlent

Samdráttur um 3,1%

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Landsframleiðsla dróst saman um 3,1% að raungildi frá 1. ársfjórðungi til 2. ársfjórðungs, að því er bráðabirgðatölur Hagstofunnar benda til.

Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 7,4%. Einkaneysla dróst saman um 3,2% og fjárfesting dróst saman um 4,7%. Samneysla jókst um 1,0%. Þá jókst útflutningur um 2,8% á þessu tímabili en innflutningur dróst saman um 5,1%.

Fyrrgreindar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli ársfjórðunga, ekki ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×