Sport

Badminton: Helgi varði titilinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Helgi Jóhannesson vann báðar loturnar gegn Kára Gunnarssyni 21-19.
Helgi Jóhannesson vann báðar loturnar gegn Kára Gunnarssyni 21-19.

Helgi Jóhannesson vann áðan Kára Gunnarsson í úrslitaleiknum í einliðaleik karla á Íslandsmótinu í badminton. Helga tókst því að verja titil sinn.

Báðir eru þeir úr TBR. Kári var fyrsti maðurinn til að fara í úrslit í einliðaleik karla í meistaraflokki og vera jafnframt leikmaður í U19 landsliðinu í 32 ár.

Nú stendur yfir úrslitaleikurinn í einliðaleik kvenna þar sem þær Tinna Helgadóttir og Ragna Ingólfsdóttir mætast.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×