Lífið

Guðbörg sigraði Söngkeppni Skólafélagsins 2010

Einar Lövdahl Gunnlaugsson skrifar
Eiríkur Ársælsson, sigurvegarinn frá því í fyrra.
Eiríkur Ársælsson, sigurvegarinn frá því í fyrra.
Söngkeppni Menntaskólans í Reykjavík var haldin í gær á vegum Skólafélagsins í Loftkastalanum. Mikið var í keppnina lagt enda mikil skipulagsvinna sem liggur að baki svona keppni. Umsjón með keppninni höfðu fjórar stelpur í skemmtinefnd og stóðu þær sig með miklum sóma. Þær eru: Anna Jia, Helga Þórunn Óttarsdóttir, Steinunn Kristín Jóhannsdóttir og Telma Geirsdóttir.

Flutt voru sautján metnaðarfull atriði og mikil stemmning og gleði ríktu í Loftkastalanum. Kynnar voru þeir Guðmundur Felixson og Kjartan Darri Kristjánsson og tókst þeim mjög vel til. Undirleikssveit kvöldsins skipuðu þeir Daníel Friðrik Böðvarsson, Helgi Egilsson, Þorbjörn Sigurðsson og Þorvaldur Þór Þorvaldsson. Hið erfiða hlutverk sem fólst í því að gera upp á milli atriðanna sautján var falið söngkonunum Heru Björk Þórhallsdóttur og Ragnheiði Gröndal ásamt tónlistarmanninum Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni.

Í þriðja sæti hafnaði kvartett þriðjubekkinga sem flutti lagið I Take a Look at My Enormous Penis, en það atriði var jafnframt valið ,vinsælasta atriðið' af áhorfendum. Þennan flotta kvartett skipuðu þeir Árni Þór Lárusson, Bragi Þór Ólafsson, Ólafur Kjaran Árnason og Stefán Þór Þorgeirsson. Í öðru sæti hafnaði tríó fagurra stúlkna sem flutti diskóslagarann I Will Survive í útsetningu The Puppini Sisters en það voru þær Eygló Hilmarsdóttir, Katrín Arndísardóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir sem fluttu það af stakri snilld.

Sigurvegari kvöldsins var þó Guðbjörg Hilmarsdóttir sem stóð ein á sviðinu, að undanskilinni undirleikssveitinni, og flutti lagið Dancing með ítölsku söngkonunni Elisa. Var hún vel að sigrinum komin og ljóst er að MR-ingar geta án alls efa fylgst stoltir með Guðbjörgu flytja lagið í Söngkeppni framhaldsskóla í vor.



Þessi frétt er skrifuð af fulltrúa MR fyrir Skólalífið á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.