Bretinn Jenson Button á McLaren Mercedes vann spennuuþrunginn Fornúlu 1 kappakstur í Ástralíu í dag. Með útsjónarsemi sá hann við keppinautum sínum og fagnaði fyrsta sigrinum með McLaren liðinu, sem hann gekk til liðs við í vetur.
Keppendur ræstu af stað á regndekkjum og var mikill atgangur í byrjun. Sebastian Vettel náði forystu á Red Bull, en það var mikill atgangur í byrjun.
Vettel var fremstur á ráslínu og náði forystu, en miklar sviptinar voru fyrir aftan hann í ræsingunni. Massa skaust í annað sætið og Kubica vann sig hratt upp listann.
Árekstur varð milli Fernando Alonso og Jenson Button sem skall á Michael Schumacher. Skemmdist framvængur á bíl Schumachers sem þurfti að fara á þjónustusvæðið og tapaði miklum tíma. Hann var þar með úr leik í toppbaráttunni.
Button var í sjöunda sæti og tók þá ákvörðun að skipta fyrstur manna yfir á þurrdekk, en þurr lína myndaðst smám saman á rakri brautinni. keppinatuar hans fylgdu síðan í kjölfarið, en útsjónarsemi Buttons varð til þess að hann vann sér inn dýrmætan tíma.
Engu að síður hélt Vettel forystunni, en Button komst úr sjöunda sæti í það annað og var í fluggír. En Vetel virtist engu að síður hafa sigurinn í hendi sér í öðru móitinu í röð, en heilladísirnar voru ekki með honum. Bremsukerfið að framan bilaði hjá Vettel og hann skautaði útaf brautinni í beygju og hætti keppni.
Mikill hasar var alla keppnina um næstu sæti á eftir Button, en Kubica hélt vell eftir að hafa ekið af festu. Á meðan börðust margir ökumenn af miklu kappi frá byrjun. Lewis Hamilton og Mark Webber áttust margoft við í brautinni og tókust á við Alonso og Massa um sæti. Höfðu augastað á verðlaunasæti á lokasprettinum.
En Webber keyrði á endandum á Hamilton og fór útaf brautinni, en Hamilton náði að klára, en hann haffði sýnt mjög góð tilþrif alveg frá upphafi. Webber skipti um framvæng, en vonir um glæstan árangur á heimavelli voru úr sögunni. Við óhappið komst Nico Rosberg á Mercedes í fimmta sætið á eftir Alonso og Massa sem höfðu sýnt skemmtleg tilþrif alla keppnina.
En engn fékk óignað Button sem hafði veðjað á dekkjaskipti í upphaffi mótsins á hárréttum tíma. Button kom 12 sekúndum á undan Kubica í endamark.
Alonso er með 37 stig í stigakeppni ökumanna, Massa 33 og Button 31. Í keppni bílasmiða er Ferrari með 70 stig og McLaren 54.
Lokastaðan efstu manna.
1. Button McLaren-Mercedes 1:33:36.531
2. Kubica Renault + 12.034
3. Massa Ferrari + 14.488
4. Alonso Ferrari + 16.304
5. Rosberg Mercedes + 16.683
6. Hamilton McLaren-Mercedes + 29.898
7. Liuzzi Force India-Mercedes + 59.847
8. Barrichello Williams-Cosworth + 1:00.536
9. Webber Red Bull-Renault + 1:07.319
10. Schumacher Mercedes + 1:09.391