Erlent

Segja al-kaída að undirbúa hryðjuverk um jólin

Yfirvöld í Írak segja að samkvæmt vitnisburði tveggja uppreisnarmanna í landinu sé al-kaída nú að undirbúa hryðjuverkaárásir um jólin í Evrópu og Bandaríkjunum.

Greint var frá þessu í fréttum CBS sjónvarpsstöðvarinnar. Fram kemur í fréttinni að hin misheppnaða árás í Stokkhólmi um síðustu helgi hafi verið meðal þess sem uppreisnarmennirnir greindu frá.

Uppreisnarmennirnir hafa ekki sagt frá öðrum skotmörkum al-kaída á næstunni og öryggissérfræðingar segja ómögulegt að staðfesta eða hafna vitnisburði þeirra en benda á að al-kaída hafi áður framið hryðjuverk meðan á jólahátíðinni stendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×