Innlent

Drög að Icesave samkomulagi kynnt

Lárus Blöndal kynnti nýverið framvindu málsins fyrir þingflokkum stjórnarandstöðunnar.
Lárus Blöndal kynnti nýverið framvindu málsins fyrir þingflokkum stjórnarandstöðunnar.
Drög að nýju Icesave samkomulagi hafa verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands stefna að því að ljúka við gerð samnings sem allra fyrst.

Lárus Blöndal, fulltrúi stjórnarandstöðunnar í samninganefnd Íslands kynnti framvindu málsins fyrir þingflokkum stjórnarandstöðunnar fyrir skömmu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þeir stjórnarandstöðuþingmenn sem fréttastofa hefur rætt við segjast ekki munu gefa fyrirfram vilyrði fyrir stuðningi við málið fyrr en þeir sjái lokaniðurstöðu og hafi kynnt sér hana. Á þetta sérstaklega við um framsóknarmenn.

Eins og við greindum frá í kvöldfréttum í gær liggja helstu samningsatriði fyrir milli samninganefnda landanna. Enn standa nokkur atriði út af borðinu og er unnið stíft í að fækka ágreiningsatriðum þessa dagana.

Fjármálaráðuneytið hefur fengið forystumenn úr atvinnulífinu til liðs við sig í að kynna málið og hvetja þingmenn til að veita drögum að samkomulagi blessun sína.

Stóri óvissuþátturinn í málinu er pólitíska hliðin. Óvissan um stuðning við nýtt samkomulag setur strik í reikninginn og líklegt er að málið strandi á því, fremur en á ágreiningi milli samninganefndanna. Ljóst er að málið fer ekki fyrir Alþingi fyrr en menn eru vissir um að mikill meirihluti þingsins styðji það.

Stjórnvöld eru tilbúin með andmælabréf til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, í meginatriðum en margframlendur frestur til andmæla vegna áminningar ESA rennur út á þriðjudag.

Í grein á vef Financial Times í dag segir að ef Íslendingar nái samkomulagi við Breta og Hollendinga um Icesave á næstu vikum gæti það haft áhrif langt út fyrir Ísland. Greinarhöfundur segir að ein af ástæðum þess að reynt sé að ná sátt í málinu nú frekar en að fara með það fyrir dómstóla sé sú að stjórnvöld í Evrópu vilji ekki skapa óvissu um hvar ábyrgð á innistæðutryggingum liggi.


Tengdar fréttir

Nýtt samkomulag nánast tilbúið

Margframlengdur frestur stjórnvalda til að skila svari til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave rennur út á þriðjudag. Mikið er þrýst á þingmenn stjórnarandstöðunnar að veita drögum að nýjum Icesavesamningi blessun sína, svo komast megi hjá því að málið fari fyrir EFTA-dómstólinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×