Innlent

Óánægja með veggjöld hjá sunnlenskum sveitarfélögum

Til stendur að taka upp veggjöld á Suðurlandsvegi og fleiri leiðum í nágrenni Reykjavíkur
Til stendur að taka upp veggjöld á Suðurlandsvegi og fleiri leiðum í nágrenni Reykjavíkur Mynd: Anton Brink
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga líta svo á að ef veggjöld verða tekin upp án þess að eldsneytisskattar verði lækkaðir á móti sé ljóst að um hreina tvísköttun verði að ræða. Stjórn samtakanna hefur óskað eftir fundi með Ögmundi Jónassyni samgöngumálaráðherra vegna upptöku veggjalda á Suðurlandsvegi og fleiri leiðum í nágrenni Reykjavíkur.

Í tilkynningu sem samtökin senda frá sér segir að á síðasta ári hafi meðaltalsumferð um Suðurlandsveg á milli Selfoss og Reykjavíkur um 8000 bílar á sólarhring. „Áætla má að eldsneytisskattar af þessari umferð hafi numið um einum og hálfum milljarði króna og þá er ekki tekið tillit til annarra tekna af umferðinni s.s. bifreiðasköttum og vörugjöldum. Ef veggjöld verða lögð á samkvæmt fyrrgreindum fréttum nemur sú upphæð um einum milljarði króna á ári vegna umferðar um Suðurlandsveg. Samkvæmt áætlun Vegagerðarinnar kostar breikkun Suðurlandsvegar, sem framkvæmdir eru hafnar við, um 16 milljörðum króna. Miðað við ofangreindar forsendur þá greiðist kostnaður við verkið upp á innan við 10 árum að teknu tilliti til 3.5% ávöxtunar. Ef veggjöld verða tekin upp án þess að eldisneytisskattar verði lækkaðir á móti er ljóst að um hreina tvísköttun verður að ræða," segir í tilkynningu.

Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hvetur yfirvöld samgöngumála til þess að hafa samráð við sunnlensk sveitarfélög um þessar auknu álögur á íbúa Suðurlands með tilkomu vegtolla á Suðurlandsvegi og að fulls jafnræðis verði gætt á milli íbúa landsins hver sem niðurstaðan verður. Í því sambandi bendir stjórn SASS á að nú greiða Vestmannaeyingar ígildi hárra veggjalda á milli Eyja og Landeyjahafnar sem hvergi eiga sér hliðstæðu í þjóðvegakerfinu. Nauðsynlegt er að taka þau mál til endurskoðunar, að mati stjórnar samtakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×