Golf

Ekki fleiri lánsbílar til Tigers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Bíllinn sem Tiger Woods keyrði á tré var ekki hans eigin. Bíllinn, sem er af gerðinni Cadillac Escalade, var í eigu General Motors og Tiger fær ekki fleiri bíla lánaða frá fyrirtækinu.

Tiger var með samning við fyrirtækið sem rann út um áramótin. Hann verður ekki endurnýjaður.

Hinn moldríki Tiger hafði fengið nokkra bíla lánaða frá fyrirtækinu. Bæði Cadillac og Buick.

Hann neyðist nú til þess að borga fyrir sína eigin bíla í framtíðinni.



 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×