Innlent

Samstarf við leit og björgun

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Mynd/Anton Brink
Á fundi aðildarríkja Norðurskautsráðsins, sem haldinn var í Reykjavík dagana 14.-16. desember, var lokið gerð alþjóðasamnings um samstarf við leit og björgun á hafi og í lofti á norðurslóðum.

„Talið hefur verið brýnt að bregðast við aukinni fyrirsjáanlegri umferð á hafi og í lofti og annarri starfsemi á norðurslóðum, m.a. vegna loftslagsbreytinga, og aukinni hættu á slysum sem þar af leiðir. Í hinum nýja samningi eru afmörkuð leitar- og björgunarsvæði sem hvert ríkjanna átta bera ábyrgð á og kveðið á um skuldbindingar þeirra og samstarf við leitar- og björgunaraðgerðir," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu

Fundinn sóttu um 50 sérfræðingar frá Bandaríkjunum, Danmörku fyrir hönd Færeyja og Grænlands, Finnlandi, Íslandi, Kanada, Noregi, Rússlandi og Svíþjóð, auk fulltrúa Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, en unnið hefur verið að gerð samningsins undanfarið ár.

Í tilkynningunni segir að samningurinn sé sögulegur þar sem um sé að ræða fyrsta alþjóðasamninginn milli hinna átta aðildarríkja Norðurskautsráðsins. „Er hér á ferðinni mikilvægt fordæmi og vísir að frekari samningsgerð og nánu samstarfi milli ríkjanna undir hatti ráðsins. Gerð samningsins fellur vel að stefnu íslenskra stjórnvalda í norðurslóðamálum en þau hafa lagt mikla áherslu á að efla Norðurskautsráðið sem meginsamstarfsvettvanginn fyrir málefni norðurslóða."

Samningurinn verður undirritaður á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins í Nuuk á Grænlandi í maí á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×