Innlent

Sökin ekki hjá Fjármálaeftirlitinu

SB skrifar
Jón Magnússon lögmaður, kann hraðlestur og hefur legið yfir skýrslunni í dag.
Jón Magnússon lögmaður, kann hraðlestur og hefur legið yfir skýrslunni í dag.
„Meginatriðið er það að bankahrunið er á ábyrgð bankamanna sjálfra og þeim sem stjórnuðu þeim," segir Jón Magnússon lögmaður og faðir Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Hann tjáir sig ekki um ábyrgð sonar síns.

„Ég vil eðli málsins samkvæmt ekkert fjalla um það," spurður um hlut sonar síns í skýrslunni en þar kemur fram hve afdrifaríkt sinnuleysi stofnunarinnar gagnvart fjármálakerfinu hafi reynst - eftirlit hafi nánast legið niðri vegna undirmönnunar og skorts á fjármagni.

Þó Jón vilji lítið tjá sig um það sem snýr að fjölskyldunni hefur hann fylgst vandlega með framvindu mála í dag. "Ég hlustaði með athygli á blaðamannafundinn og fór svo beint í að skoða skýrsluna á netinu. Ég bý svo vel að hafa lært hraðlestur og því skannaði ég þetta með hraði."

Jón var reyndar á leiðinni að ná sér í pappírsútgáfu skýrslunnar.

„Þá breytir maður um aðferð, sest niður með gulan yfirstrikunarpenna... þarna er mikill fróðleikur um samtímastjórnmál og almennt um vinnubrögð."

Og fyrstu viðbrögð Jóns. „Það er engin ástæða að kalla saman landsdóm. Þarna var hvorki um ásetning né stjórnlaust gáleysi ráðamanna að ræða." Jóni finnst ábyrgð Ingibjargar hins vegar mikil og að í tilfelli Björgvins G. sem sagði af sér sem þingflokksformaður í dag hafi bakari verið hengdur fyrir smið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×