Innlent

Uppgjörið fer fram á mörgum vígstöðvum

Páll Hreinsson segir að Sérstökum saksóknara verðir falið að rannsaka alla stjórnarmenn og framkvæmdastjóra bankanna.
Páll Hreinsson segir að Sérstökum saksóknara verðir falið að rannsaka alla stjórnarmenn og framkvæmdastjóra bankanna. MYND/Kristófer

Sérstökum saksóknara verður falið að rannsaka alla stjórnarmenn og framkvæmdastjóra bankanna. Enn fremur á hann að rannsaka fall krónunnar, en þar er grunur um markaðsmisnotkun, og margt fleira.

Uppgjör fer fram á mörgum vígstöðvum, sagði Páll Hreinsson, formaður Rannsóknarnefdnarinnar á blaðamannafundi. Hann nefndi sérstakan saksóknara, Alþingi og skilanefndir. Enn fremur sagði hann nauðsynlegt að taka stjórnarskrá Íslands til endurskoðunar og fjölmörg lög, einnig Seðlabanka og Fjármálaeftirlit.

Nefndin hefði í gær átt fund með sérstökum saksóknara - þar hefði verið tilkynnt hvað krefðist sakamálarannsóknar að mati nefndarinnar. Í skýrslunni eru nefnd stjórnir og framkvæmdastjórar fjármálafyrirtækja. Rannsakað verði hvort stjórn og framkvæmdastjórar þeirra fjármálafyrirtækja, sem féllu haustið 2008 og í upphafi árs 2009, hafi brotið starfsskyldur sínar við stjórnun og eftirlit þannig að refsingu varði.

Þá eru tiltekin ástarbréfaviðskiptin í gegnum Icebank. Viðskipti bankanna með gjaldeyri í aðdraganda hrunsins, en þar er grunur um markaðsmisnotkun. Þá kynnu endurskoðendur að hafa framið refsiverð brot.

Hér má sem dæmi nefna segir nefndin að rekstrarkostnaður útibús Kaupþings í Lundúnum, virðist aðallega hafa verið starfrækt utan um stjórnarformanninn, Sigurð Einarsson, en hvorki hafa verið undir eftirliti innri eða ytri endurskoðenda Kaupþings banka hf.

Þá kemur fram í þessu kafla skýrslunnar að fjölmargir innherjar hafi tekið fé út úr penignamarkaðssjóðum fyrir hrun. Þetta eigi sérstakur saksóknari allt að rannsaka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×