Lítur svo á að fækkað hafi í stjórnarliðinu 17. desember 2010 06:15 Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir sátu, ásamt stjórnarandstöðunni, hjá þegar greidd voru atkvæði um fjárlög.fréttablaðið/gva „
Ég met stöðu ríkisstjórnarinnar svo að hún hafi stuðning 32 þingmanna af 63 á Alþingi og þar af leiðandi eins manns meirihluta." Þetta sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, í samtali við Fréttablaðið eftir atkvæðagreiðslu um fjárlög í gær. Þrír þingmenn VG; Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Í yfirlýsingu til þingflokks VG frá í gærmorgun útskýra þremenningarnir afstöðu sína. Í henni segir að þótt nokkuð hafi áunnist í því að afstýra stórslysi í upphaflegum niðurskurðaráformum í heilbrigðisþjónustu og almannatryggingakerfinu sé fjárlagafrumvarpið enn boðberi kreppudýpkandi efnahagsáætlunar sem vegi of harkalega að þeim grunnstoðum sem ríkisstjórnin hafi lofað að standa vörð um. Enn fremur segja þeir ríkisstjórnina og forystumenn hennar þurfa að taka vinnubrögð sín til gagngerrar endurskoðunar. „Vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við gerð fjárlagafrumvarpsins, sem og ýmsum öðrum stórum og afdrifaríkum málum, hafa einkennst af forræðishyggju og foringjaræði frekar en lýðræðislegri ákvarðanatöku." Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður VG, segir þau orð ómakleg. „Þau þurfa að skýra þetta út. Fjárlagafrumvarpið hefur oft verið rætt í þingflokki VG og allar meginlínur voru kynntar áður en frumvarpið var lagt fram. Þetta er ómaklegt vegna þess að að baki þessarar niðurstöðu stendur stærstur hluti þingflokksins." Um stöðu ríkisstjórnarinnar segir Árni Þór að hún hafi enn meirihluta á þingi. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, segir þremenningana ráða örlögum ríkisstjórnarinnar. „Þau verða að svara hvað þau ætla að gera. Við vitum ekki hver afstaða þeirra til framhaldsins er." Hann varð fyrir vonbrigðum með afstöðu þeirra í atkvæðagreiðslunni. „Ég varð fyrir gríðarlegum vonbrigðum. Við höfum unnið að þessu fjárlagafrumvarpi í tvo og hálfan mánuð. Ekkert okkar er í sjálfu sér ánægt með að þurfa að gera það sem við erum að gera en aðstæðurnar eru bara svona og við reynum að gera þetta með okkar hætti og öðru vísi en aðrir flokkar hefðu gert við sömu aðstæður. Þau sýna okkur samstarfsfólkinu og þeirri vinnu sem við höfum lagt í þetta verk mikla lítilsvirðingu." bjorn@frettabladid.is
Tengdar fréttir Þrír þingmenn VG styðja ekki fjárlagafrumvarpið Þrír þingmenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs munu ekki styðja fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Atkvæðagreiðsla um frumvarpið hófst laust eftir klukkan ellefu í morgun. Þingmennirnir sem telja sig ekki geta stutt frumvarpið eru Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason. 16. desember 2010 11:36 Þríeykinu verður ekki vísað úr þingflokknum „Ég mun ekki mæla með því að neinum verði vísað úr þingflokknum enda er það ekki í okkar lögum að gera það. Það eru allir velkomnir í okkar þingflokk sem vilja vinna þar og vinna með okkur. Við fögnum öllum stuðningsmönnum ríkisstjórnar sem eru það í reynd,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, í Kastljósi í kvöld. 16. desember 2010 20:03 „Hverjum er sætt í þingflokknum?“ Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir engan mun á stefnu Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnarinnar hvað niðurskurð hjá hinu opinbera varðar. „Spurning hverjum er sætt í þingflokknum. Þeim sem fylgja eftir vilja félaganna og ályktunum flokksins eða þeim sem afvegaleiðast innan múra valdsins,“ segir Lilja á Facebook-síðu sinni í kvöld. Þar vísar hún til ummæla Steingríms J. Sigfússonar í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Þar sagði Steingrímur að Lilju, Atla Gíslasyni og Ásmundi Daða Einarssyni væri tæplega sætt í þingflokknum. „Nei, tæplega eins og ekkert hafi í skorist því þetta er nokkuð erfið uppákoma.“ 16. desember 2010 20:59 Framtíð stjórnarsamstarfsins í óvissu Framtíð stjórnarsamstarfsins er í óvissu eftir að þrír þingmenn Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins í dag, sem var samþykkt með minnstum mögulegum meirihluta á Alþingi. Fjármálaráðherra segir afstöðu þingmannanna vonbrigði og forsætisráðherra segir ekki ljóst hvort hægt sé að treysta á stuðning þremenninganna í framtíðinni. 16. desember 2010 18:50 Meira skorið niður í velferðarmálum en í stjórnsýslunni Á sama tíma og skorið er verulega niður í mörgum mikilvægum málaflokkum þá er lítið skorið niður í æðstu stjórnsýslu ríkisins, segja þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason í yfirlýsingu sem þau samþykktu fyrir atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag. 16. desember 2010 16:17 Steingrímur vonsvikinn með flokksfélagana Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG, segist hafa orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með að þrír þingmenn flokksins skuli hafi ákveðið að sitja hjá í afgreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag. Fjárlögin voru samþykkt með 32 atkvæðum en 31 þingmaður sat hjá, þar á meðal þingmenn VG, þau Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason. 16. desember 2010 15:48 Fjárlagafrumvarpið samþykkt Þrjátíu og tveir þingmenn greiddu fjárlagafrumvarpinu atkvæði sitt, en atkvæðagreiðslu lauk laust eftir klukkan eitt í dag. Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, hafði fyrirfram gert grein fyrir því að hún og samflokksmenn hennar, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason, myndu ekki greiða frumvarpinu atkvæði sitt. 31 þingmaður sat hjá við atkvæðagreiðsluna en enginn greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. 16. desember 2010 13:33 Ekkert fararsnið á Atla „Ég þykist vita að flokkurinn standi nógu lýðræðislega sterkum fótum til að þola þessa umræðu,“ segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna. Hann segir ekkert fararsnið á sér. „Nei, ég er rótgróinn í flokknum eins og eikartré. Ég er að vona að flokkurinn fari ekki of langt frá mér og stefnumiðum sínum.“ 16. desember 2010 22:32 Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Fleiri fréttir Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Sjá meira
Þrír þingmenn VG styðja ekki fjárlagafrumvarpið Þrír þingmenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs munu ekki styðja fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Atkvæðagreiðsla um frumvarpið hófst laust eftir klukkan ellefu í morgun. Þingmennirnir sem telja sig ekki geta stutt frumvarpið eru Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason. 16. desember 2010 11:36
Þríeykinu verður ekki vísað úr þingflokknum „Ég mun ekki mæla með því að neinum verði vísað úr þingflokknum enda er það ekki í okkar lögum að gera það. Það eru allir velkomnir í okkar þingflokk sem vilja vinna þar og vinna með okkur. Við fögnum öllum stuðningsmönnum ríkisstjórnar sem eru það í reynd,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, í Kastljósi í kvöld. 16. desember 2010 20:03
„Hverjum er sætt í þingflokknum?“ Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir engan mun á stefnu Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnarinnar hvað niðurskurð hjá hinu opinbera varðar. „Spurning hverjum er sætt í þingflokknum. Þeim sem fylgja eftir vilja félaganna og ályktunum flokksins eða þeim sem afvegaleiðast innan múra valdsins,“ segir Lilja á Facebook-síðu sinni í kvöld. Þar vísar hún til ummæla Steingríms J. Sigfússonar í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Þar sagði Steingrímur að Lilju, Atla Gíslasyni og Ásmundi Daða Einarssyni væri tæplega sætt í þingflokknum. „Nei, tæplega eins og ekkert hafi í skorist því þetta er nokkuð erfið uppákoma.“ 16. desember 2010 20:59
Framtíð stjórnarsamstarfsins í óvissu Framtíð stjórnarsamstarfsins er í óvissu eftir að þrír þingmenn Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins í dag, sem var samþykkt með minnstum mögulegum meirihluta á Alþingi. Fjármálaráðherra segir afstöðu þingmannanna vonbrigði og forsætisráðherra segir ekki ljóst hvort hægt sé að treysta á stuðning þremenninganna í framtíðinni. 16. desember 2010 18:50
Meira skorið niður í velferðarmálum en í stjórnsýslunni Á sama tíma og skorið er verulega niður í mörgum mikilvægum málaflokkum þá er lítið skorið niður í æðstu stjórnsýslu ríkisins, segja þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason í yfirlýsingu sem þau samþykktu fyrir atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag. 16. desember 2010 16:17
Steingrímur vonsvikinn með flokksfélagana Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG, segist hafa orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með að þrír þingmenn flokksins skuli hafi ákveðið að sitja hjá í afgreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag. Fjárlögin voru samþykkt með 32 atkvæðum en 31 þingmaður sat hjá, þar á meðal þingmenn VG, þau Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason. 16. desember 2010 15:48
Fjárlagafrumvarpið samþykkt Þrjátíu og tveir þingmenn greiddu fjárlagafrumvarpinu atkvæði sitt, en atkvæðagreiðslu lauk laust eftir klukkan eitt í dag. Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, hafði fyrirfram gert grein fyrir því að hún og samflokksmenn hennar, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason, myndu ekki greiða frumvarpinu atkvæði sitt. 31 þingmaður sat hjá við atkvæðagreiðsluna en enginn greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. 16. desember 2010 13:33
Ekkert fararsnið á Atla „Ég þykist vita að flokkurinn standi nógu lýðræðislega sterkum fótum til að þola þessa umræðu,“ segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna. Hann segir ekkert fararsnið á sér. „Nei, ég er rótgróinn í flokknum eins og eikartré. Ég er að vona að flokkurinn fari ekki of langt frá mér og stefnumiðum sínum.“ 16. desember 2010 22:32