Innlent

Undirbúningur stóriðju á Bakka hafinn á ný

Stjórn Landsvirkjunar samþykkti í dag að verja allt að einum og hálfum milljarði króna á næsta ári til borana og annars undirbúnings orkuöflunar fyrir stóriðju í Þingeyjarsýslum.

Eftir meira en tveggja ára hlé fer undirbúningur stóriðjuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum nú á fulla ferð að nýju, samkvæmt ákvörðun stjórnar Landsvirkjunar í dag, en fyrirskipun þáverandi umhverfisráðherra sumarið 2008 um sameiginlegt umhverfismat leiddi til þess rannsóknarboranir stöðvuðust.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir þetta ákveðin tímamót fyrir svæðið. Biðstaða sé búin að vera. Hún sé nú rofin og segir Hörður að spennandi verði að halda áfram af stað.

Landsvirkjun hyggst verja eittþúsund og fimmhundruð milljónum króna á næsta ári til undirbúnings þriggja virkjana. Um helmingurinn, eða 720 milljónir, fer til að undirbúa virkjun á Þeistareykjum, meðal annars í boranir og vegagerð. Nærri 600 milljónir fara til að undirbúa stækkun Kröfluvirkjunar og um 200 milljónum króna verður varið til að undirbúa virkjun í Bjarnarflagi.

Rafmagnið frá þessum virkjunum er svo ætlunin að selja einhverjum sem vill byggja upp starfsemi á Norðausturlandi, og ekki endilega álver, en forstjóri Landsvirkjunar segir viðræður í gangi við nokkra mögulega kaupendur.

Spurningin sem brennur á Húsvíkingum og öðrum er hvenær uppbyggingin geti hafist:

„Við vildum helst gera samninga sem allra fyrst," segir Hörður og vísar til þess að Landsvirkjun sé búin að verja um níu milljörðum króna til undirbúnings virkjana í Þingeyjarsýslum og er þegar með 100 megavött tilbúin til að virkja. Það ráðist hins vegar af því hvenær Landsvirkjun nái ásættanlegum samningum.

Spurður hvort samningar geti náðst í vetur svarar Hörður: „Það gæti gerst en það er því miður ekki hægt að fullyrða það."










Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×