Fótbolti

Jóhann Berg skoraði í Íslendingaslag í Evrópukeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu.
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Stefán

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði síðara mark AZ Alkmaar í 2-0 sigri liðsins á sænska liðinu IFK Gautaborg í undankeppni Evrópudeildar UEFA í kvöld.

Jóhann Berg skoraði markið sitt á 55. mínútu leiksins með laglegu skoti, aðeins þremur mínútum eftir að Ragnar Klavan hafði komið Hollendingunum yfir.

Síðari leikur liðanna fer fram í Gautaborg í næstu viku. Jóhann Berg lék allan leikinn fyrir AZ í kvöld en Kolbeinn Sigþórsson var ónotaður varamaður.

Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku allan leikinn fyrir Gautaborg pg Theódór Elmar Bjarnason kom inn á sem varamaður á 60. mínútu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×