Jón Ásgeir fékk ekki samþykkta frávísunarbeiðni Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. júlí 2010 11:56 Jón Ásgeir segir eignir sínar einnar milljónar pundar virði.
Jón Ásgeir Jóhannesson segir að eignir sínar séu samtals einnar milljónar punda virði. Breskur dómstóll féllst ekki á það en dómari í kyrrsetningarmáli sem slitastjórn Glitnis hefur höfðað á hendur honum í Lundúnum féllst ekki á kröfu Jóns Ásgeirs um frávísun. Lögmanni Jóns Ásgeirs Jóhannessonar tókst ekki að sannfæra dómara í Lundúnum um réttmæti þess að vísa frá kröfu slitastjórnar Glitnis um frystingu eigna hans á heimsvísu í gær. Dómarinn vísaði jafnframt frá kröfu Jóns Ásgeirs þeirra um áfrýjun og féllst dómarinn á það sjónarmið slitastjórnarinnar að Jón Ásgeir hafi ekki gefið réttinum fullnægjandi upplýsingar um eigur sínar. Samkvæmt því sem Jón Ásgeir hefur gefið upp fyrir breskum dómstólum eru eigur hans á Bretlandi og á Íslandi samtals einnar milljónar punda virði en það er jafnvirði 189 milljóna króna. Taldi breski dómarinn það ósennilegt og tók því undir sjónarmið slitastjórnar Glitnis. Jón Ásgeir sagði í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu í gær að eigur hans væru samtals einnar milljónar punda virði og áréttað því það sem kom fram í skjölum sem lögð voru fram. Samhliða kyrrsetningarmáli í Lundúnum hefur slitastjórnin sem kunnugt er höfðað skaðabótamál á hendur Jóni Ásgeiri og fleirum fyrir héraðsdómi New York-fylkis en slitastjórnin krefst 260 milljarða króna í skaðabætur. Í eiðsvörnum vitnisburði fyrir breskum dómstól vegna kyrrsetningarmálsins segist Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar, hafa ástæðu til að ætla að Jón Ásgeir sé enn mjög efnaður maður og að hann hafi leynt eignum sínum, en skjalið með vitnisburði Steinunnar er meðal gagna sem birt er á vef dómstóls New York-fylkis og er hluti af rökstuðningi slitastjórnarinnar þar. Jón Ásgeir hefur hafnað þessu. Þá hefur hann hafnað því að vera samsamaður eiginkonu sinni, eins og slitastjórnin hafi reynt að gera. Það sé bæði móðgandi gagnvart sér og henni, enda sé hún sjálfstæð kaupsýslukona sem taki sínar eigin ákvarðanir.
Mest lesið Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Innlent 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Innlent Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Innlent Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Innlent Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Innlent „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ Innlent Fleiri fréttir N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Nýjar stofnanir hafi aðsetur á landsbyggðinni Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni Glæsilegt gullregn og hlynur í Hveragerði Mikil og þétt umferð í dag Eldsneyti komið aftur í Staðarskála Aukið ofbeldi gegen heilbrigðisstarfsfólki og kosningar í Bretlandi Virðist ekki hafa dregið úr kvikuinnstreymi í Svartsengi Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Ekkert eldsneyti í Staðarskála Ekki spurst til mannsins síðan snemma í gær Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“ Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Sjá meira