Innlent

Mikið tjón vegna vatnsleka á Akureyri

Mikill vatnsleki varð í Slippnum á Akureyri í morgun þegar að heitavatnsrör fór í sundur. Þegar slökkviliðs- og lögreglumenn komu á staðinn á sjöunda tímanum var ökkladjúpt vatn yfir stóru rými á tveimur hæðum og töluverð gufa. Að sögn lögreglu er um mikið tjón að ræða en skemmdir urðu meðal annars á trésmíðaverkstæði, skrifstofu og kaffistofu. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu gekk hreinsunarstarf vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×