Farfuglaheimilin fá Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 16. desember 2010 16:36 Stefán Haraldsson, formaður Farfugla, tekur við umhverfisverðlaunum Ferðamálastofu 2010 úr hendi ráðherra ferðamála, Katrínar Júlíusdóttur.
Farfuglaheimilin í Reykjavík fengu Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu sem veitt voru í 16. sinn í dag. Heimilin fá verðlaunin fyrir markvissa umhverfisstefnu og sjálfbæran rekstur en það var Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, sem afhenti verðlaunin við athöfn á Grand Hótel Reykjavík. Við sama tækifæri var einnig kynnt nýtt gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar sem hlotið hefur nafnið VAKI. Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá 1995 því fyrirtæki sem þykir hafa staðið sig best í umhverfismálum innan ferðaþjónustunnar og hreppa farfuglaheimilin í Reykjavík; í Laugardal og á Vesturgötu 17, verðlaunin að þessu sinni. Umhverfisvottaðir gististaðir Fram kemur m.a. í rökum dómnefndar að farfuglaheimilin í Reykjavík séu einu umhverfisvottuðu gististaðirnir á höfuðborgarsvæðinu og líklega á landinu öllu ásamt Hótel Hellnum. „Það vó einnig þungt við ákvörðun dómnefndarinnar að bæði farfuglaheimilin eru með Svaninn, opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Slík vottun gerir strangar kröfur til þeirra sem hana hljóta og eru farfuglaheimilin í Reykjavík einu gististaðirnir hér á landi sem fengið hafa Svansvottunina," segir ennfremur og bent á að farfuglaheimilin gangi um margt lengra en kröfur eru gerðar um, s.s. í upplýsingagjöf til gesta. „Áhugavert þykir að sjá hversu hlutlæg markmiðssetning og eftirfylgni heimilanna er. Þannig sé tryggt að boðað verklag verði ekki orðin tóm. Einnig er til eftirbreytni að mati dómnefndar hversu vel farfuglaheimilin vekja athygli á menningarviðburðum sem eru í gangi á hverjum tíma og taki jafnframt kröftuglega þátt í félagslífinu í nærumhverfi sínu," segir einnig í tilkynningu. Gæða- og umhverfiskerfið VAKI „Við athöfnina í dag kynnti ráðherra ferðmála einnig nafn á nýju gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar en efnt var til samkeppni um nafnið - sem skyldi vera á íslensku og lýsandi fyrir verkefnið en jafnframt þjált í framburði á alþjóðavettvangi. Um 130 tillögur bárust og var það niðurstaða dómnefndar að nýtt gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu skuli heita VAKI enda sé kerfinu ætlað að vaka yfir frammistöðu þeirra sem starfa í greininni og vekja og viðhalda áhuga á gæðum íslenskrar ferðaþjónustu. Þar sem fleiri en ein tillaga barst með nafninu VAKI var dregið um vinningshafa. Upp kom nafn Gunnars Svavarssonar og hlýtur hann í verðlaun 100 þúsund krónur."
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Viðskipti innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Innlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Innlent Fleiri fréttir Ný könnun, frægir á þing og Íslandsmet í augsýn Óvenjuleg aukin virkni við Geysi Alma og Guðmundur Ari leiða í Kraganum Ragnar Þór tekur sæti Tomma og verður oddviti Leitað að sex ungmennum um helgina og eitt enn týnt „Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Ekið á tvo á gatnamótum við Kringlumýrarbraut Vilja skýrari svör um afgreiðslu fjárlaga og þingslit Stunguárásin í Grafarvogi: Grunar ekki að málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi Ekkert drama á bak við frestun fundarins Faðirinn áfram í gæsluvarðhaldi Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Kosningapallborð: Kanónur kveðja Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Her af iðnaðarmönnum við framkvæmdir á Stuðlum Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sjá meira