Innlent

Stórtækir íslenskir kóksmyglarar dæmdir á Spáni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kókaín.
Kókaín.
Einar Örn Arason, 19 ára, og tvítug unnusta hans voru dæmd í sex ára fangelsi í héraðsdómi í Madríd í dag  fyrir kókaínsmygl, að því er fram kemur á fréttavef RÚV.

Fréttablaðið sagði frá máli parsins fyrir ári síðan. Þar kom fram að þau voru handtekin í Madríd þann 17 desember í fyrra á leið sinni frá Perú með 15 kíló af kókaíni. Talið er að parið hafi verið burðardýr, sem hafi verið ætlað að koma efnunum til Íslands. Þau höfðu falið kókaínið í ferðatöskum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×