Innlent

Talsvert magn fíkniefna fannst á Eskifirði og á Seyðisfirði

Lögreglan á Eskifirði í samstarfi við fleiri lögregluembætti og sérsveit Ríkislögreglustjórans á Norðurlandi fór í nokkrar húsleitir í umdæmum lögreglunnar á Eskifirði og Seyðisfirði í gær í tengslum við rannsóknir fíkniefnamála.

Nokkrir aðilar voru handteknir og þeim sleppt að loknum yfirheyrslum að því er fram kemur í tilkynningu. Talsvert magn fíkniefna fannst ásamt tækjum og tólum til áfengisframleiðslu en frekari upplýsingar verða ekki gefnar að svo stöddu og eru málin eru áfram til rannsóknar.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×