Fótbolti

Bayern sigraði í þýska súperbikarnum

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Arjen Robben með Philipp Lahm og Toni Kroos á liðsmyndatöku fyrir tímabilið. Mynd/AFP
Arjen Robben með Philipp Lahm og Toni Kroos á liðsmyndatöku fyrir tímabilið. Mynd/AFP
Bayern Munchen sigraði Schalke, 2-0, í þýska súperbikarnum sem fór fram í gær á Allianz Arena leikvanginum í Munchen.

Það vantaði nokkra lykilmenn í lið Bayern en þeir Arjen Robben, Franck Ribery og Mark van Bommel voru allir fjarverandi. Það skipti þó litlu máli því Thomas Muller skoraði fyrsta mark leiksins á 75. mínútu og Miroslav Klose bætti svo við öðru markinu á 81. mínútu og gerði út um leikinn.

Þýska deildin hefst svo 20. ágúst næstkomandi þar sem Bayern fær Wolfsburg í fyrsta leik en Wolfsburg var þýskur meistari árið 2009 og Bayern núna í ár. Schalke mætir aftur á móti Hamburger SV í fyrsta leik tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×