Innlent

Björgunarsveitir sinntu tugum útkalla

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgunarsveitarmenn að störfum.
Björgunarsveitarmenn að störfum.
Björgunarsveitir sinntu tugum útkalla í gær vegna óveðurs. Að sögn Ólafar Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, liggur heildarfjöldi útkalla yfir landið allt ekki fyrir en ljóst er að þau voru um þrjátíu í Árborg og um svipaðan fjölda var að ræða á Suðurnesjum.

Ólöf segir að hjálparbeiðnir hafi nánast alveg hætt að berast um klukkan sjö í gærkvöld að undanskildu einu útkalli sem barst á Suðurnesjum eftir klukkan fjögur í nótt. Þar höfðu þakplötur losnað af íbúðarhúsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×