Erlent

Hryðjuverkamenn vilja myrða á dönskum jólum

Óli Tynes skrifar
Danskir hermenn í Afganistan.
Danskir hermenn í Afganistan.

Norska blaðið VG hefur heimildir fyrir því að Danmörk verði sérstakt skotmark hryðjuverkamanna um hátíðarnar. Leyniþjónusta Íraks hefur varað við því að til standi að gera hrinu árása í Evrópu og Bandaríkjunum. Þessar upplýsingar eru fengnar við yfirheyrslur á liðsmönnum Al-Kaida sem eru í íröskum fangelsum. Sagt er að árásin í Stokkhólmi í síðustu viku hafi verið liður í þessari herferð.

Í Evrópu hafa Danir flestum þjóðum meira angrað múslima undanfarin ár. Það hófst með skopmyndum af spámanninum, sem er síður en svo búið að fyrirgefa. Þá voru Danir einnig með herlið í Írak á sínum tíma og eru nú með hersveitir í Afganistan. Danirnir eru þar í fremstu víglínu ásamt Bandaríkjamönnum og Bretum, eins og tölur yfir fallna og særða bera með sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×