Innlent

Unglingar reyndu að kveikja í fjölbýlishúsi á Keflavíkurflugvelli

Nokkrir unglingar gerðu tilraun til að kveikja í á þremur stöðum í fjölbýlishúsi á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkruflugvelli í nótt.

Þeir ætluðu að kveikja í sófum, sem voru í sameign í tveimur stigagöngum, en íbúi kallaði á lögreglu sem stöðvaði leikinn áður en það tækist.

Unglingarnir náðust og sóttu forledrar þeirra þá á lögreglustöðina og barnaverndaryfirvöldum var gert viðvart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×