Fótbolti

Kjartan Henry: Okkar besti leikur í sumar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

"Þetta var ekki eins auðvelt og það leit út fyrir að vera. Aðstæður voru mjög erfiðar og við þurftum því að halda einbeitingu," sagði KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason eftir 3-0 sigur á Glentoran í kvöld.

Allt annað var að sjá til KR-liðsins í kvöld en það spilaði loksins þann bolta sem allir vita að liðið getur spilað.

"Mér fannst við vera miklu afslappaðri en oft áður í sumar. Við höfðum engu að tapa og mér fannst þetta vera okkar besti leikur í sumar. Við sýndum flotta fótbolta á köflum og höldum hreinu. Það var í raun magnað hvað við gátum spilað vel miðað við aðstæður," sagði Kjartan en er það ekki stórslys ef KR kemst ekki áfram?

"Við erum hálfnaðir og verðum að spila seinni leikinn af sama kraft."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×