Innlent

Ríkisstjórnin: Endurreisnaráætlun stjórnvalda sett í uppnám

Fjármálaráðherra og forsætisráðherra á fundinum í Stjórnarráðinu.
Fjármálaráðherra og forsætisráðherra á fundinum í Stjórnarráðinu. MYND/anton

Ríkisstjórnarfundi er lokið í Stjórnarráðinu og að honum loknum las Jóhanna Sigurðurdóttir forsætisráðherra upp yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Yfirlýsingin ber yfirskriftina „endurreisnaráætlun stjórnvalda sett í uppnám" og byrjaði Jóhanna á því að fara yfir þann árangur sem náðst hefur á árinu við endureisn Íslands.

Hún sagði að það samkomulag sem náðist við Breta og Hollendinga hafi þegar bætt samskipti Íslands við aðrar þjóðir.

Ákvörðun forsetans stefnir að mati stjórnarinnar þeim árangri sem náðst hafi í mikla tvísýnu. Í viljayfirlýsingu vegna samnings við AGS er því heitið að ljúka Icesave málinu auk þess sem Norðurlandalánin hanga einnig á spýtunni.

Þá sagði Jóhanna að áhöld væru um það hvort það sé pólitískt og stjórnskipulega eðliegt að forseti skipti sér af alþjóðamálum á borð við Icesave samningana. Auk þess gæti óvissa eða uppnám í samskiptum við önnur ríki haft ófyrirséðar afleiðingar.

Jóhanna sagði einnig að sérstök tilkynning verði send út þar sem það verði undirstrikað að ríkisstjórnin ætli ekki að hlaupast undan ábyrgð í Icesave-málinu.

Að lokum var vonbrigðum lýst með ákvörðun forsetans og sagði Jóhanna að ríkisstjórnin meti nú stöðuna. Hún tók einnig sérstaklega fram að forsetinn hefði ekki látið ríkisstjórnina vita fyrirfram um ákvörðun sína.

Yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar má sjá í heild sinni í viðhengi hér að neðan.
















Tengdar fréttir

Verdens Gang: Neita að borga kreppuskuld

Ákvörðun forseta Íslands í Icesave málinu er forsíðuefni vefsíðu norska blaðsins Verdens Gang undir fyrirsögninni „Neita að borga kreppuskuld".

Börsen: Ísland hleypur frá breskri bankaskuld

Norrænir fjölmiðlar voru snöggir að greina frá niðurstöðu forsetans í Icesave málinu. Fyrirsögnin á stuttri frétt á börsen.dk er „ Ísland hleypur frá breskri bankaskuld".

Bloomberg: Forsetinn ógnar alþjóðasamskiptum Íslands

Í umfjöllun Bloomberg fréttaveitunnar um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta um að hafna Icesave frumvarpinu segir að með þessari ákvörðun ógni forsetinn alþjóðasamskiptum Íslands og trufli mörg nauðsynleg mál í efnahagslegri endurreisn landsins.

Sigmundur Davíð: Þarf að sameina þjóðina ekki sundra

„Ég er reyndar mjög sáttur við ákvörðunina og það þarf að nýta tækifærið til þess að sameina þjóðina en ekki sundra hana,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, þar sem hann synjaði lögum staðfestingar varðandi ríkisábyrgð á Icesave.

Forsetinn vísar Icesave lögum til þjóðarinnar

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur ákveðið að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingar Íslands. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans á Bessastöðum klukkan ellefu. Forsetinn hefur haft lögin til staðfestingar í fimm sólahringa.

Ríkisstjórnin fundar enn í Stjórnarráðinu

Ríkisstjórn Íslands er á fundi í Stjórnarráðinu sem hófst áður en Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti um að hann ætlaði að vísa Icesave-lögunum til þjóðarinnar í stað þess að undirrita lögin. Talsmaður forsætisráðherra tilkynnti fjölmiðlamönnum sem bíða viðbragða að fundurinn stæði enn og að ekki væri ljóst hvenær honum lýkur.

Ögmundur: Fullkomlega rökrétt ákvörðun

Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands og eindreginn andstæðingur Icesave-samningsins eins og hann lítur út í dag segir að ákvörðun Ólafs Ragnars um að neita að skrifa undir Icesave lögin sé fullkomlega rökrétt.

Bjarni Ben: Forsetinn samkvæmur sjálfum sér

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þó það sé sín skoðun að forseti eigi ekki að beita synjunarvaldi sé forsetinn samkvæmur sjálfum sér með synjun sinni á breyttum Icesave-lögum. Hann segist einnig gleðjast yfir því tækifæri sem þetta feli í sér til þess að ná víðtækri sátt og samtöðu á meðal þjóðarinnar í Icesave-málinu.

Greining: Líklegra að lánshæfismat ríkissjóðs lækki

Greining Íslandsbanka greinir frá fyrstu viðbrögðum fjármálamarkaðarins við ákvörðun forsetans í Icesave málinu. Þar kemur m.a. fram að nú sé líklegra en ella að lánshæfismat ríkissjóðs lækki.

Hitti fjóra ráðherra vegna ríkisábyrgðar

Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnir um ákvörðun sína varðandi lög um ríkis­ábyrgð vegna Icesave á Bessastöðum klukkan 11 í dag. Þá kemur í ljós hvort hann staðfestir lögin eða synjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×