Ágúst: Við getum spilað miklu betur en þetta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2010 21:26 Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars, var sáttur með sigurinn á Njarðvík í Iceland Express deild kvenna í kvöld en vonast þó eftir að liðið spili betur í toppslagnum á móti Keflavík í næsta leik. „Þær missa aðalskorararnn sinn og þá fannst mér eins og liðið mitt héldi að þetta væri komið. Við vorum ekki að hafa nógu mikið fyrir hlutnum og það vantaði meiri kraft í okkar leik. Við vorum með þetta í okkar hendi allan leikinn en Njarðvíkurstelpurnar börðust mjög vel," sagði Ágúst en stigahæsti leikmaður Njarðvíkur, Dita Liepkalne, meiddist á ökkla eftir aðeins 54 sekúndur og var ekkert meira með. Hamarsliðið er búið að vinna sex fyrstu leiki sína og er á toppnum í Iceland Express deildinni ásamt Keflavík. „Þetta er óskabyrjun og við getum ekki beðið um betri byrjun en það er strax farið að hugsa um næsta leik sem verður toppslagur í Keflavík. Ég var ekki ánægður með neitt sérstakt nema kannski að Kristrún var rosalega einbeitt og var að klára færin sín vel," sagði Ágúst en Kristrún átti stórleik og skoraði 34 stig þar af 18 þeirra með þriggja stiga skotum. „Við vorum að spila eins vel og við þurftum að spila. Stemmningin í hópnum er mjög góð og það er ég kannski ánægðastur með. Við þurfum klárlega að spila betur á móti Keflavík og við getum spilað miklu betur en þetta," sagði Ágúst. „Við getum ekki beðið um meira en þetta því það er erfitt að vinna sjö leiki í sex leikjum. Er ekki fínt að vera búin að klára alla þá leiki sem við erum búnir að fara í. Við erum búin að spila einu sinni við Keflavík í vetur, það fór ekki eins og við ætluðum okkur og við eigum því harma að hefna," sagði Ágúst að lokum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira