Innlent

Þóra Arnórsdóttir sjónvarpsmaður ársins

Þóra Arnórsdóttir.
Þóra Arnórsdóttir.
Fréttamaðurinn og þáttastjórnandinn Þóra Arnórsdóttir var valin sjónvarpsmaður ársins á Edduverðlaunahátíðinni sem fór fram í Háskólabíói í kvöld.

Fjölmörg verðlaun voru afhent á hátíðinni. Guðrún Gísladóttir var verðlaunuð sem meðleikkona ársins fyrir leik sinn í kvikmyndinni Desember. Þá fékk Björn Thors verðlaun sem meðleikari ársins fyrir hlutverk sitt sem Kenneth Máni í Fangavaktinni.

Sýnt var frá hátíðinni í opinni dagskrá Stöðvar 2. Kynnir var Baltasar Kormákur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×