Innlent

Sveitarstjórn Borgarbyggðar með áhyggjur af Bifröst

Magnús Árni Magnússon, rektor Bifrastar segir að um fjandsamlega yfirtöku á skólanum sé að ræða.
Magnús Árni Magnússon, rektor Bifrastar segir að um fjandsamlega yfirtöku á skólanum sé að ræða.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir miklum áhyggjum af hugmyndum um samruna Háskólanna að Bifröst og í Reykjavík. Í yfirlýsingu sveitarstjórnarinnar segir að fjöldi starfsmanna muni flytjast frá Bifröst til Reykjavíkur og að héraðið muni missa einn af sínum mikilvægustu vinnustöðum.

Sveitarfélagið hafi í fjölda ára stutt við bakið á Háskólanum að Bifröst með mikilli uppbyggingu á aðstöðu, til þess að þar sé hægt að bjóða upp á fjölskylduvænt umhverfi.




Tengdar fréttir

Hugnast samstarf háskólanna í Borgarfirði

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum af framkomnum hugmyndum um innlimun Háskólans á Bifröst í Háskólann í Reykjavík. Tillögurnar fela í sér að háskólanám á Bifröst muni leggjast af og það nám sem eftir stendur mun veikjast verulega, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá sveitarstjórn Borgarbyggðar. Sveitarstjórnin fagnar framkomnum hugmyndum um aukið samstarf háskólanna í Borgarfjarðarhéraði og mun leggja sitt af mörkum til þess að háskólarnir vaxi og dafni.

Óásættanlegt að leggja niður háskólastarf á Bifröst

Hollvinasamtök Háskólans á Bifröst leggjast alfarið gegn hugmyndum sem fela í sér að háskólakennsla verði flutt frá Bifröst til Reykjavíkur. Samtökin leggja ríka áherslu á að sameiningarviðræður Háskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík sem hafa staðið undanfarna mánuði fari fram á jafnræðisgrunni. „Að okkur hálfu er mjög skýrt að það á ekki að leggja Bifröst niður," segir formaður samtakanna.

Fjandsamleg yfirtaka á Háskólanum á Bifröst

Magnús Árni Magnússon segist ekki ætla að verða rektorinn sem leggur niður háskólastarf á Bifröst og vill að skólinn dragi sig út úr sameiningarviðræðum við Háskólann í Reykjavík.

Afstaða rektors kom mönnum í opna skjöldu

Afstaða Magnúsar Árna Magnússonar, rektors Háskólans á Bifröst, um að slíta eigi viðræðum um sameiningu skólans við Háskólann í Reykjavík, kom stjórnarformönnum skólanna í opna skjöldu. Viðræðum um mögulega sameiningu verður haldið áfram. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá Andrési Magnússyni, formanni stjórnar Háskólans á Bifröst, og Finn Oddssyni, formanni háskólaráðs Háskólans í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×