Gjörgæsludeildin græðir á endurunnum farsímum 17. desember 2010 14:15 Jón Gnarr, borgarstjóri, ákvað að láta aðstandendaherbergi á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut njóta góðs af söfnunarfénu.
Jón Gnarr, borgarstjóri, ýtti úr vör endurvinnsluverkefni Reykjavíkurborgar og fyrirtækisins Grænnar Framtíðar í dag með því að skila inn til endurvinnslu smáraftækjum sem ekki eru lengur í notkun. Starfsmenn og borgarbúar geta komið með smáraftæki heiman frá sér til endurvinnslu í gegnum sérstakt kerfi sem tekið hefur verið í notkun í samstarfi við Græna Framtíð. Tekið er á móti smáraftækjum til endurvinnslu í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur eða í Upplýsingaveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 - 14. Um er að ræða fartölvur, farsíma og önnur smáraftæki sem eru orðin úrelt eða ekki lengur nothæf.Nýtt raftæki með litlum tilkostnaði Fyrirtækið Græn framtíð mun annast flutning búnaðarins til endurvinnslufyrirtækja í Evrópu og Bandaríkjunum. Endurvinnslan snýst um að gera við hluti eða nýta nothæfa hluti til þess að gera annan hlut virkan. Með endurvinnslu smáraftækis er hægt að fá heilt raftæki með litlum tilkostnaði og ekki þörf á að búa til nýtt. Til dæmis er hægt að skipta um skjái eða setja nýja rafhlöðu í tæki svo að þau virki eins og áður.Skapar verðmæti Endurunnu tækin eru svo seld að nýju, meðal annars til þróunarríkja fyrir brot af upphaflegu verði tækjanna. Einnig er hægt að nýta virka íhluti úr þeim fyrir framleiðslu og viðgerðir á öðrum raftækjum. Þá er spilliefnum úr tækjum eytt með löglegum hætti. Með þessu móti er hægt að skapa verðmæti og síður gengið á afurðir jarðarinnar.Gjörgæslan nýtur góðs af Með endurvinnsluáætluninni vill Reykjavíkurborg efla umhverfisvitund og stuðla að almennri endurvinnslu og endurnotkun á smáraftækjum. Ávinningur af sölu búnaðarins rennur til góðgerðarmála og ákvað Jón Gnarr, borgarstjóri, að láta aðstandendaherbergi á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut njóta góðs af söfnunarfénu.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Viðskipti innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Innlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Innlent Fleiri fréttir Ný könnun, frægir á þing og Íslandsmet í augsýn Óvenjuleg aukin virkni við Geysi Alma og Guðmundur Ari leiða í Kraganum Ragnar Þór tekur sæti Tomma og verður oddviti Leitað að sex ungmennum um helgina og eitt enn týnt „Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Ekið á tvo á gatnamótum við Kringlumýrarbraut Vilja skýrari svör um afgreiðslu fjárlaga og þingslit Stunguárásin í Grafarvogi: Grunar ekki að málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi Ekkert drama á bak við frestun fundarins Faðirinn áfram í gæsluvarðhaldi Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Kosningapallborð: Kanónur kveðja Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Her af iðnaðarmönnum við framkvæmdir á Stuðlum Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sjá meira